Skýrsla Nefndar um þróun Evrópumála aðgengileg á vefnum
Skýrsla Nefndar um þróun Evrópumála er nú aðgengileg hér á vefnum. Skýrslan var birt 15. apríl 2009 en hún er afrakstur vinnu nefndar sem skipuð var að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Illugi Gunnarsson og Ágúst Ólafur Ágústsson alþingismenn stýrðu vinnu nefndarinnar, en auk þingflokkanna áttu sæti í nefndinni fulltrúar fjölmargra samtaka á vettvangi atvinnurekenda og verkalýðshreyfingar.
Skýrslan er 60 blaðsíður að lengd og hana má nálgast hér á PDF-sniði.
Um hlutverk nefndarinnar
Með stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar var sett á laggirnar nefnd um þróun Evrópumála. Í nefndinni áttu sæti fulltrúar stjórnmálaflokka sem sæti áttu á Alþingi á þeim tíma, einn frá hverjum flokki, Sjálfstæðisflokki, Samfylkingu, Vinstri hreyfingunni – grænu framboði, Framsóknarflokknum og Frjálslynda flokknum. Að auki sátu þar fulltruar frá Alþýðusambandi Íslands, Samtökum opinberra starfsmanna, Samtökum atvinnulífsins og Viðskiptaráði Íslands.
Nefndinni var falið að fylgja eftir tillögum Evrópunefndar frá mars 2007 um aukna þátttöku stjórnmálamanna og embættismanna í hagsmunagæslu tengdri Evrópustarfi. Þá skyldi nefndin athuga nánar hvernig hagsmunum Íslendinga yrði best borgið í framtíðinni gagnvart Evrópusambandinu og fylgjast með þróun mála í Evrópu og leggja mat á breytingar út frá hagsmunum Íslendinga.
Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs sem tók við í febrúar 2009, fól nefndinni að að ljúka störfum við úttekt á viðhorfum hagsmunaaðila til Evrópusambandsins. Nefndin skilaði, eins og áður sagi, skýrslu 15. apríl 2009 sem hefur að geyma mat á stöðu og horfum Íslands gagnvart samstarfi við Evrópuþjóðir og framtíðarhorfum í gjaldmiðlamálum.

